12.9.2012

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana 12. september 2012 röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað miðvikudaginn 12. september, kl. 19.50. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Framsóknarflokkur og
Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Lúðvík Geirsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Mörður Árnason, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, í annarri Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Síðastir í fyrstu umferð tala þingmenn utan þingflokka:
Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Atli Gíslason, 4. þm. Suðurkjördæmis.